ASÍA – BACHELOR OF SCIENCE IN INDUSTRIAL ENGINEERING – BOSTON

13 06 2008

Það er greinilegt að ég hef dottið vel úr þjálfun í blogginu.

Ég gat þó ekki látið þessa viðburðarríku daga líða án þess að eiga um þá nokkur orð.

Ég er ný komin úr DÁSAMLEGRI útskriftarferð. Sennilega mesta upplifun mín á ferðum mínum um heiminn.

Ferðin byrjaði með nokkrum góðum slögurum á Sams bar í Köben… þaðan var ferðinni heitið til…

SHANGHAI

Þar ríkti mikil óreyða. Bilið milli fátækra og ríkra var gríðarstórt. Gjá sem ekki fæst lýst í nokkrum orðum hér. Þetta var svo langt ferðalag að ég ætla mér ekki að hafa mörg orð um hvern áfangastað. Verð þó að segja að kínverskur matur er langt frá því að vera eins unaðslegur og halda mætti.

Ég setti myndir frá Shanghai hér

Shanghai

Næst fór hópurinn til

SINGAPORE

Munurinn að vera í Sanghai og Singapore er ekki eðlilegur. Í Kína þurfti maður án gríns að óttast um líf sitt þegar gengið var yfir götu, (umferðareglur í Sanghai eru meira eins og siðareglur á íslandi, þú átt að fara eftir þeim en það er samt meira bara upp á þig komið hvort þú gerir það.

Í Singapore var allt í fullkomnri röð og reglu. Utan á stórum ríkumannlegum húsum var gjarnan skilti sem á var mynd af lögreglu skjóta mann sem þýddi (líkast til) að ef þú vogaðir þér inn fyrir skiltið í leyfisleysi mátti skjóta þig… spes. Löggurnar ganga um í röðum, með risa rifla og sverð. Allt stæltir ungir menn og mjög alvarlegir. Eins gott að henda ekki tyggjói á þessar hreinu götu því þá máttu eiga von á því að ein svona einkennisklædd ofurhetja taki þig í jailið!

Myndir frá SINGAPORE

Singapore

Því næst fórum við til

PHUKET

Hér var slappað af. Notið lífsins og leyft sólinni að smeygja geislum sínum alla leið inn að beinum (eða næstum því). Ég komst að því að ég er með melenín af skornum skammti í kroppnum á mér. Ég þurfti að vinna margfalt harðar af mér til þess að fá lit. Sterkasta sólvörnin mín var nr. 8, en ég endaði nú bara í Cocanut oil með Völu, hihih… ekkert baby block hér á bæ;) Slapp þó alveg við allan bruna…

Hótelið var geggjað!!!!!!!!!!!, maturinn góður og tælendingar… tja.. greinilega með kynvitund (vona að ég hafi ekki móðgað neinn:P ).

p.s í þessum hluta ferðarinnar fékk ég loksins að fara á langþráða fólsbakið:)

Myndir frá Phuket

Phuket

Frá Phuket fórum við í einna náttar ferð til

PHI PHI

Orð fá ekki lýst fegurðinni á þessari eyju.

Læt myndirnar bara tala sínum orðum,

Myndir frá PHI PHI

PhiPhi

Ferðin endaði svo í

BANGKOK

Hvort sem þið trúið því eða ekki þá var augljóst að mengunin er töluvert minni í Bangkok heldur en í Shanghai. Það kom mér mikið á óvart.

Ég fékk það einhvern vegin á tilfinningunni í þessari borg að það væri ekki nema svona 10% íbúanna það sem ég kalla “venjulegir” karlmenn. Tælendingar viðurkenna þriðja kynið, það hefur eitthvað sniðugt nafn sem ég man ekki. Þetta kyn er kona í karlmannslíkama. Karla-kona eins og siður var að kalla þær meðal íslendingana í ferðinni ;) Oft voru þetta lögulegustu “kvenmenn”.

Það er hægt að gera margt í Bangkok… fyrir forvitna sem heimsækja borgina er hægt að skreppa á sívinsæl PingPong show…. ekki fyrir viðkvæma. Ég endurtek. Ekki fyrir viðkvæma!

Myndir frá Bangkok

Bangkok

En nú er þessi dásemd á enda og ég meira að segja búin að vera í vinnu á Íslandi í heila viku.

Framundan er ÚTSKRIFT!!!!!!! Hér eftir er það:

Anna Hulda Ólafsdóttir, BACHELOR OF SCIENCE IN INDUSTRIAL ENGINEERING!

:) :):):):):):)

Athöfnin er á laugareginum en sunnudagurinn er ekki síður spennandi…. Flug til Boston með Brynju !!!!

TVÆR Í TVÆR VIKUR Í USA!





Vúhú…

15 03 2008

Ég setti loksins inn myndirnar mínar frá árshátíðinni!!!

Bætti líka við myndum úr unaðslegri skíðaferð með Brynju brun;)

árshátíðin 2008
Bláfjöll – 14.mars o8




Árshátíðin

13 03 2008

Það er löngu þekkt staðreynd að verkfræðiárshátíðirnar eru þær allra skemmtilegustu! Fjörið í mannskapnum stendur ávallt yfir fram eftir nóttu. Árshátíðin sem átti sér stað nú 7. mars er engin undantekning þar á. Hótel Selfoss bar þess líka vel merki daginn eftir að menn höfðu verið í galsa miklum :P . Heyrst hefur að einhver hafi henti stól út um gluggann, annar hafi brotið marmara baðherbergisplötu, enn annar hafi brákað rúmfót, einhver hafi sprautaði úr myglaðri vatnsslöngu yfir mjög svo dýrt teppi, hvort það var sá sami sem á að hafa brotið veggljósinn er erfitt að segja til um…

Ég fékk stórt saknaðartár í annað augnvikið þegar ég steig “hress” út í skínandi sólina daginn eftir. Engin svona árshátíð aftur. Þessi uppgötvun vakti ónotatilfinningu um mig alla. Ég er gömul.

Sögurnar frá kvöldinu eru mis krassandi og lifa mis vel í minningunni…hmmm. Sem betur fer voru virkir ljósmyndarar út um allt til að staðfesta líðandi stund.

Það hefur verið eilífðar vesen með það að koma ljósmyndum á síðuna mína undanfarið. Loksins hefur mér tekist að setjafallegu skíðamyndirnar á netið;) og má bera þær augum hér…

Bláfjöll mars’08

Myndir frá árshátíðinni eru HÉR . Þetta eru Brynju myndir. Mínar koma inn vonandi í kvöld;)





Ógleymanleg fegurð

7 03 2008

Það gerðist loksins. Réttur tími, rétt veður, réttur félagsskapur og tækifæri til að komast á skíði!

Við nöfnurnar (Anna María og ég) og Brynja fórum í Bláfjöll síðustu helgi. Ég fékk nostalgíu-hroll um mig alla þegar bíllinn rann loksins í hlað á bílastæðinu. Veðrið var eins fullkomið og hæft er að hugsa sér. Íslenska sólin, hreina loftið og ferskleikinn alls staðar.

Fyndið að koma á stað sem ég man svo vel eftir úr æsku eftir svona langa bið. Allt var eitthvað svo lítið. Gamla lyftan var þarna ennþá þó að nýrri hafi verið bætt við. Ég ákvað að skella mér í þessa gömlu þó hún væri augljóslega ekki eins hröð og nýja ofur lyftan, bara upp á fílinginn. Lyftustaurarnir voru svo sannarlega ekki lengur 100 metra háair. Þvert á móti fanst mér ég næstum snerta skíðabrekkuna með skíðunum mest allan tíman á meðan lyftan silaðist upp á leið. Niðurleiðin var líka sjokk í sömu átt. Þessi stóra brekka, “kóngsgilið” sem mér fannst vera stærri en allt einu sinni, var svo agnarsmá. Ég tók tímann á úrinu mínu hvað niðurferðin krafðist margra mínúta úr lífi mínu. Mínúturnar reyndust vera í eintölu. Ein ferð, ein mín. … vó , svekk.

Ferðin var samt sem áður ógleymanleg.

Ég elska skíði:)

Ég var ekki með myndavél, en skvísurnar tóku geggjaðar myndir sem mér bar

Næst á dagskrá er svo árshátíð verkfræðinema við Háskóla Íslands. Mun hljómsveitin Dalton kæta gleðskapinn fram eftir nóttu á Selfoss! vívívíví…. Get ekki beðið. Meira um þetta næst.

kv. Anna





Glitnir, Glitnir, plötusmíðanámskeið, into the wild, útskriftir, iðnaðartölfræðipróf

24 02 2008

Fín helgi á enda. Föstudagskvöldið var lítt eitt litað af Glitni þar sem kvöldið byrjaði með vísindaferð hjá Glitni og endaði á uppskeruhátíð símsöluvers Glitnis. Vel var veitt á báðum stöðum og voru sumir orðinr skrautlegir þegar líða tók á kvöldið.

Rétt fyrir klukkan 9 á laugardagsmorguninn reif ég mig fram úr rúminu og hljóp út í bíl. Á slaginu 9 var mín mætt í Hafnafjörðinn þar sem deginum var eytt á æsispennandi plötusmíðanámskeiði þar sem ég bjó til festingar á 17 verkfærakassa :P Mjög gaman að pússa stál í heilan dag eftir langa nótt.

Til að halda augunum opnum fram að útskriftaveislum hjá “Kárhildi” skrapp ég að sjá Into the wild. Ég gef þessari mynd alveg 4 stjörnur. Mæli með henni !





Kennarafagnaðurinn magnaði og Akureyri

15 02 2008

Ég var að ljúka við að setja myndirnar frá kennarafagnaðinum inn á velnem og þar sem myndasíðan mín er í einhverjum hægagangi núna þá bendi ég bara á þessa slóð: HÉR  í bili.

Þetta kvöld var auðvitað aðeins of tryllt. Ég fæ kjánahroll um allan líkamann þegar ég hugsa til baka og minningin um mig garga lag í míkrafóninn eins og tryllt rokkstjarna í röngum líkama skíst upp í huga mér….darm

Minningar sem vekja upp kjánahrolla frá þessu kvöldi eru reyndar aðeins of margar… Ráð til þeirra sem eiga svipaðan atburð eftir : “Borða meira en drekka” :P

Á morgun er það svo bara SKÍÐI!!!!!! eða reyndar bretti þar sem litli bróður var svo sætur að gefa mér slíkt :)

aríós… Anna





Kína – Singapore – Tæland – Kína (?)

3 02 2008

Það er allt að gerast. Hvernig er hægt að læra fyrir lokapróf í Slembnum ferlum þegar allt þetta er fast í huganum?

FRAMADAGAR voru á föstudaginn og gengu þeir eins og í sögu. Þvílíkt gott að vera búin að skila þeim af sér;) Almennt virtust fyrirtækin hafa verið afar sátt og er ég viss um að það hafi verið metþátttaka í kokteilnum á eftir;)

HÖNNUNARKEPPNIN var líka á sama degi í Háskólabíói… Ég kýs að minnast ekki á sigurliðið en við segja við alla sem tóku sér tíma til að taka þátt – Til hamingju. Þið stóðuð ykkur eins og hetjur;)

ÚTSRIFTARFERÐIN. Ég tók þá ákvörðun að það væri ekki hægt að sleppa þessari unaðslegu ferð. Planið er einhvernvegin svona:

16.maí – Flogið til Shanghai þar sem fullt af vísindaferðum bíða hópsins;). Þar verður eðal annars keypt video vél sem mun verða notuð til að skráfesta atburði ferðarinnar:). Þessi hluti ferðarinnar er svona meira skólaferð en eitthvað annað.

23.maí – Flogið Til Singapure. Þessi dásamlega, múltí-kúltural borg þrædd og næturlífið vel kannað!!!

27.maí – Flogið til Phuket/ Chang Maí. /Kambódíu. Ef næg þátttaka næst í MAGNAÐA fjallaferð þá fer ég beint til Chang Maí. Þar sem það þarf að rífast svolítið um fólk til að ná nægri þátttöku svo hægt sé að leggja upp í fjallaferðina held ég að það sé tilvalið að minnast á það að í þessari ferð verður meðal annars farið á FÍLSBAK, gist meðal heimamanna á frumlstæðum gististað í fjallaskála. Dansað og sungið með heimamönnum sem ætla að spila á banjo, hehe. Farið með uxakerrum milli bændaþorpa. Farið í lækningajurtagarð þar sem endað er í morguntee hjá töfralækni. ofl. ofl.

31.maí – Flogið til Phuket… þ.e ef draumur minn um Chang Maí rætist.

1.júní – Klárlega farið til Phi Phi eyjunnar (þessari sem er í myndinni Beach). Snorklað – kokteilar – sól…mmmm

3.júní – Flogið til Bankok. Hér ætla ég klárlega að finna mér klæðskera sem á að sauma fyrir mig nýjan fataskáp eftir eigin höfði;)

6.júni – allir fara heim nema Anna, Brynja og Vala sem eru staðráðnar í að finna sér vinnur í kína yfir sumarið:D:D:D:D

c.a 10.ágúst – Farið til Beijing og skoðað kínamúrinn og Ólympíuleikana!

… nú er bara að krossa fingur og vona að þetta takist allt saman:)

kv. Anna ofurspennti kínafari

 





“I generally avoid temptation unless I can’t resist it.”

19 01 2008
Mae West
Lífið heldur áfram. Ákvarðanirnar varðandi framtíðina hlaðast upp á mig eins og einhver sé í alvöru að borga einhverjum fyrir að henda þeim í mig.
Hvað gerist í sumar? Fer ég út að vinna? Verð ég heima að vinna? Hvað með útskriftarferðina? Næsti vetur…pfff???????
Sökum þessa vandamáls míns sem ég kýs að kalla valkvíða á háu stigi lýsi ég efti einstakling sem treystir sér til þess að búa til bestunarlíkan í mpl eða matlap og koma með SVARIÐ;)
hmmm það er svo langt síðan ég skrifaði að ég er strax farin að ryðga. Skólinn heldur manni mjög uppteknum þessa dagana:S
Ég næ víst ekki fleiri orðum að sinni þar sem ég er þotin í rómó kvöldverð á Lækjarbrekku!
kv. Annie




Stysta skólajólafrí ever..

3 01 2008

Men, hlutirnir gerast hratt.

Síðasta prófinu lauk 20. desember.

Nú er 3. janúar og ég var í skólanum til klukkan 5 í dag. Meðfylgjandi kom heimadæmaskammtur til að skila á mánudaginn :S

pffff





Stellur og gondlar

28 12 2007

Jólin eru yndislegur tími.

Partý, góður matur, engar skyldur, bækur….mmmm

Ég fór í magnað partý til Brynju í gær þar sem bæði gondlar og stellur hittust. Fólk var flest tilbúið með skemmtiatriði sem voru ótrúlega misjöfn. Sem dæmi var atriðið hjá Gretari og Arndísi “vúss”-leikur sem endaði þannig að Gretar sjálfur sá allt tvöfalt… hehehehe.

Takk fyrir frábært partý Brynja!

Ég setti myndir hér:

Stellur og gondlar hjá Brynju

Ég setti líka myndir frá próflokapartýinu á Nasa:

Próflok jól 07 – Páll Óskar á Nasa

Gleðileg jól allir:D

kv. Anna