Mae West
Lífið heldur áfram. Ákvarðanirnar varðandi framtíðina hlaðast upp á mig eins og einhver sé í alvöru að borga einhverjum fyrir að henda þeim í mig.
Hvað gerist í sumar? Fer ég út að vinna? Verð ég heima að vinna? Hvað með útskriftarferðina? Næsti vetur…pfff???????
Sökum þessa vandamáls míns sem ég kýs að kalla valkvíða á háu stigi lýsi ég efti einstakling sem treystir sér til þess að búa til bestunarlíkan í mpl eða matlap og koma með SVARIÐ;)
hmmm það er svo langt síðan ég skrifaði að ég er strax farin að ryðga. Skólinn heldur manni mjög uppteknum þessa dagana:S
Ég næ víst ekki fleiri orðum að sinni þar sem ég er þotin í rómó kvöldverð á Lækjarbrekku!
kv. Annie

Þekki valkvíðann, have the same problem! En ég get ekki gert bestunarlíkan svo ég ætla bara að henda þessu fram…
Hvað með:
- Sleppir útskriftarferðinni og við skellum okkur í svaðalega ferð um áramótin
- Vinnur heima í sumar, pottþétt!
- Næsti vetur..hmmm tekur þér frí og vinnur í smá tíma og safnar pening, svo kemur þú bara til DK í framhaldsnám og djammið mun aldrei stoppa!
Vonandi var maturinn góður á Lækjabrekku, hún klikkar svo sem aldrei, voða kósý!
hihi… framtíðin blasir greinilega við þér í líkanagerð;)
Mjög góð tilraun!
Maturinn var b.t.w geggjaður á lækjó!
gerðu bara e-ð sem þú munt ekki sjá eftir að hafa EKKI gert…
er það ekki alltaf versta eftirsjáin…e-ð sem þú gerðir aldrei….