Það er allt að gerast. Hvernig er hægt að læra fyrir lokapróf í Slembnum ferlum þegar allt þetta er fast í huganum?
FRAMADAGAR voru á föstudaginn og gengu þeir eins og í sögu. Þvílíkt gott að vera búin að skila þeim af sér;) Almennt virtust fyrirtækin hafa verið afar sátt og er ég viss um að það hafi verið metþátttaka í kokteilnum á eftir;)
HÖNNUNARKEPPNIN var líka á sama degi í Háskólabíói… Ég kýs að minnast ekki á sigurliðið en við segja við alla sem tóku sér tíma til að taka þátt – Til hamingju. Þið stóðuð ykkur eins og hetjur;)
ÚTSRIFTARFERÐIN. Ég tók þá ákvörðun að það væri ekki hægt að sleppa þessari unaðslegu ferð. Planið er einhvernvegin svona:
16.maí – Flogið til Shanghai þar sem fullt af vísindaferðum bíða hópsins;). Þar verður eðal annars keypt video vél sem mun verða notuð til að skráfesta atburði ferðarinnar:). Þessi hluti ferðarinnar er svona meira skólaferð en eitthvað annað.
23.maí – Flogið Til Singapure. Þessi dásamlega, múltí-kúltural borg þrædd og næturlífið vel kannað!!!
27.maí – Flogið til Phuket/ Chang Maí. /Kambódíu. Ef næg þátttaka næst í MAGNAÐA fjallaferð þá fer ég beint til Chang Maí. Þar sem það þarf að rífast svolítið um fólk til að ná nægri þátttöku svo hægt sé að leggja upp í fjallaferðina held ég að það sé tilvalið að minnast á það að í þessari ferð verður meðal annars farið á FÍLSBAK, gist meðal heimamanna á frumlstæðum gististað í fjallaskála. Dansað og sungið með heimamönnum sem ætla að spila á banjo, hehe. Farið með uxakerrum milli bændaþorpa. Farið í lækningajurtagarð þar sem endað er í morguntee hjá töfralækni. ofl. ofl.
![]()
31.maí – Flogið til Phuket… þ.e ef draumur minn um Chang Maí rætist.
1.júní – Klárlega farið til Phi Phi eyjunnar (þessari sem er í myndinni Beach). Snorklað – kokteilar – sól…mmmm
3.júní – Flogið til Bankok. Hér ætla ég klárlega að finna mér klæðskera sem á að sauma fyrir mig nýjan fataskáp eftir eigin höfði;)
6.júni – allir fara heim nema Anna, Brynja og Vala sem eru staðráðnar í að finna sér vinnur í kína yfir sumarið:D:D:D:D
c.a 10.ágúst – Farið til Beijing og skoðað kínamúrinn og Ólympíuleikana!
… nú er bara að krossa fingur og vona að þetta takist allt saman:)
kv. Anna ofurspennti kínafari








Vúúúúúúú ég iiiiðaaa í skinninu þegar ég les þetta:):):) Get ekki beðið!!
Singapore er sjálfstætt ríki og ekki í Malasíu.
Malasía hvað.. hehe.. Ég sé hvergi minnst á malasíu hjá mér
Jú, víst. Svona leit færslan út áður en þú breyttir henni:
http://i30.tinypic.com/s45g29.jpg
Nohh… bara undirbúinn!
Ég hefði nú eytt út commentinu þínu og breytt færslunni ef ég væri að reyna að neita fyrir þetta…
Hahaha, allt í lagi. Var bara að reyna að pirra þig.
En samt eyddirðu Malasíuhlutanum…
Það er erfiðara að pirra mig fyrir þá sem skrifa undir dulnefni…
Hvaða malasíuhluta:P
Ég held að Jón Jónsson þurfi ekki að hafa svona miklar áhyggjur af því hvað stendur hérna.
Hef svo sem engar áhyggjur af þessu bloggi, það virðist ganga ágætlega. Ég vildi bara benda þér á þessa villu sem ég rakst á. Óþarfi að taka hana burt, varla er hún svo alvarleg. En allt í lagi, þú ræður að sjálfsögðu hvað þú gerir á eigin bloggi.
Kærar þakkir Jón minn;)
Ef þú ert kunnugur í umrædda sjálfstæða ríkinu máttu endilega deila gagnlegum upplýsingum. Er alltaf opin fyrir tipsum.
ég myndi ekki sleppa fjallaferðinni í Chaing Mai þetta er algjör paradís!!
mæli svo ekki með phuket – frekar krabi…phuket er ferðamannastaður dauðans og eins og hver önnur strönd á spáni fyrir minn smekk. En hægt að skoða phi phi eyjar frá báðum þessum ströndum sem er náttla bara ómissandi og mesta og besta upplifun sem ég veit um!
Sæl Anna,
Takk fyrir síðast. Bara láta þig vita að Söngskólinn í Reykjavík er með heimasíðu, songskolinn.is og eru örugglega að fara að byrja innritun fyrir næstu önn.
bíddu bara…. ég finn leið til að þú lendir í sömu sporum…urrrr
Frétti að það hafi verið svaka stuð á þér um helgina!
Hvernig hefur þú það annars?
hemm… já,það var frekar mikið stuð í kroppnum á mér:P
Ég hef það annars bara allt í fína. Nóg að gera eins og alltaf. Ég varð hins vegar ofur ánægð þegar ég sá að þú ætlaðir að gera þér spes íslandsferð til að koma með okkur á kaffihús;) hihih