Ég var að ljúka við að setja myndirnar frá kennarafagnaðinum inn á velnem og þar sem myndasíðan mín er í einhverjum hægagangi núna þá bendi ég bara á þessa slóð: HÉR í bili.
Þetta kvöld var auðvitað aðeins of tryllt. Ég fæ kjánahroll um allan líkamann þegar ég hugsa til baka og minningin um mig garga lag í míkrafóninn eins og tryllt rokkstjarna í röngum líkama skíst upp í huga mér….darm
Minningar sem vekja upp kjánahrolla frá þessu kvöldi eru reyndar aðeins of margar… Ráð til þeirra sem eiga svipaðan atburð eftir : “Borða meira en drekka”
Á morgun er það svo bara SKÍÐI!!!!!! eða reyndar bretti þar sem litli bróður var svo sætur að gefa mér slíkt
aríós… Anna

Sæl Anna. Takk fyrir seinast. Mikið rosalega var gaman hjá okkur í gær en fúlt að þið þurftuð að fara svona snemma en við bætum bara upp fyrir það seinna. Ég verð samt alveg að viðurkenna það, að núna er alveg þynnka.is hjá manni, enda stopaði ekki maður ekki á barnum
Takk sömuleiðis. Þetta var voða gaman!