Það er löngu þekkt staðreynd að verkfræðiárshátíðirnar eru þær allra skemmtilegustu! Fjörið í mannskapnum stendur ávallt yfir fram eftir nóttu. Árshátíðin sem átti sér stað nú 7. mars er engin undantekning þar á. Hótel Selfoss bar þess líka vel merki daginn eftir að menn höfðu verið í galsa miklum
. Heyrst hefur að einhver hafi henti stól út um gluggann, annar hafi brotið marmara baðherbergisplötu, enn annar hafi brákað rúmfót, einhver hafi sprautaði úr myglaðri vatnsslöngu yfir mjög svo dýrt teppi, hvort það var sá sami sem á að hafa brotið veggljósinn er erfitt að segja til um…
Ég fékk stórt saknaðartár í annað augnvikið þegar ég steig “hress” út í skínandi sólina daginn eftir. Engin svona árshátíð aftur. Þessi uppgötvun vakti ónotatilfinningu um mig alla. Ég er gömul.
Sögurnar frá kvöldinu eru mis krassandi og lifa mis vel í minningunni…hmmm. Sem betur fer voru virkir ljósmyndarar út um allt til að staðfesta líðandi stund.
Það hefur verið eilífðar vesen með það að koma ljósmyndum á síðuna mína undanfarið. Loksins hefur mér tekist að setjafallegu skíðamyndirnar á netið;) og má bera þær augum hér…
![]() |
| Bláfjöll mars’08 |
Myndir frá árshátíðinni eru HÉR . Þetta eru Brynju myndir. Mínar koma inn vonandi í kvöld;)

