Það er greinilegt að ég hef dottið vel úr þjálfun í blogginu.
Ég gat þó ekki látið þessa viðburðarríku daga líða án þess að eiga um þá nokkur orð.
Ég er ný komin úr DÁSAMLEGRI útskriftarferð. Sennilega mesta upplifun mín á ferðum mínum um heiminn.
Ferðin byrjaði með nokkrum góðum slögurum á Sams bar í Köben… þaðan var ferðinni heitið til…
SHANGHAI
Þar ríkti mikil óreyða. Bilið milli fátækra og ríkra var gríðarstórt. Gjá sem ekki fæst lýst í nokkrum orðum hér. Þetta var svo langt ferðalag að ég ætla mér ekki að hafa mörg orð um hvern áfangastað. Verð þó að segja að kínverskur matur er langt frá því að vera eins unaðslegur og halda mætti.
Ég setti myndir frá Shanghai hér
![]() |
| Shanghai |
Næst fór hópurinn til
SINGAPORE
Munurinn að vera í Sanghai og Singapore er ekki eðlilegur. Í Kína þurfti maður án gríns að óttast um líf sitt þegar gengið var yfir götu, (umferðareglur í Sanghai eru meira eins og siðareglur á íslandi, þú átt að fara eftir þeim en það er samt meira bara upp á þig komið hvort þú gerir það.
Í Singapore var allt í fullkomnri röð og reglu. Utan á stórum ríkumannlegum húsum var gjarnan skilti sem á var mynd af lögreglu skjóta mann sem þýddi (líkast til) að ef þú vogaðir þér inn fyrir skiltið í leyfisleysi mátti skjóta þig… spes. Löggurnar ganga um í röðum, með risa rifla og sverð. Allt stæltir ungir menn og mjög alvarlegir. Eins gott að henda ekki tyggjói á þessar hreinu götu því þá máttu eiga von á því að ein svona einkennisklædd ofurhetja taki þig í jailið!
Myndir frá SINGAPORE
![]() |
| Singapore |
Því næst fórum við til
PHUKET
Hér var slappað af. Notið lífsins og leyft sólinni að smeygja geislum sínum alla leið inn að beinum (eða næstum því). Ég komst að því að ég er með melenín af skornum skammti í kroppnum á mér. Ég þurfti að vinna margfalt harðar af mér til þess að fá lit. Sterkasta sólvörnin mín var nr. 8, en ég endaði nú bara í Cocanut oil með Völu, hihih… ekkert baby block hér á bæ;) Slapp þó alveg við allan bruna…
Hótelið var geggjað!!!!!!!!!!!, maturinn góður og tælendingar… tja.. greinilega með kynvitund (vona að ég hafi ekki móðgað neinn:P ).
p.s í þessum hluta ferðarinnar fékk ég loksins að fara á langþráða fólsbakið:)
Myndir frá Phuket
![]() |
| Phuket |
Frá Phuket fórum við í einna náttar ferð til
PHI PHI
Orð fá ekki lýst fegurðinni á þessari eyju.
Læt myndirnar bara tala sínum orðum,
Myndir frá PHI PHI
![]() |
| PhiPhi |
Ferðin endaði svo í
BANGKOK
Hvort sem þið trúið því eða ekki þá var augljóst að mengunin er töluvert minni í Bangkok heldur en í Shanghai. Það kom mér mikið á óvart.
Ég fékk það einhvern vegin á tilfinningunni í þessari borg að það væri ekki nema svona 10% íbúanna það sem ég kalla “venjulegir” karlmenn. Tælendingar viðurkenna þriðja kynið, það hefur eitthvað sniðugt nafn sem ég man ekki. Þetta kyn er kona í karlmannslíkama. Karla-kona eins og siður var að kalla þær meðal íslendingana í ferðinni
Oft voru þetta lögulegustu “kvenmenn”.
Það er hægt að gera margt í Bangkok… fyrir forvitna sem heimsækja borgina er hægt að skreppa á sívinsæl PingPong show…. ekki fyrir viðkvæma. Ég endurtek. Ekki fyrir viðkvæma!
Myndir frá Bangkok
| Bangkok |
En nú er þessi dásemd á enda og ég meira að segja búin að vera í vinnu á Íslandi í heila viku.
Framundan er ÚTSKRIFT!!!!!!! Hér eftir er það:
Anna Hulda Ólafsdóttir, BACHELOR OF SCIENCE IN INDUSTRIAL ENGINEERING!
:):):):):):)
Athöfnin er á laugareginum en sunnudagurinn er ekki síður spennandi…. Flug til Boston með Brynju !!!!
TVÆR Í TVÆR VIKUR Í USA!






Ladyboy er þriðja kynið