Stundin er runnin upp – JÓLAFRÍ!!!!!!!! :D

20 12 2007

Er á leiðinni í síðasta prófið sem þýðir að eftir um það bil 4 klukkutíma er ég laus úr fjötrum próflestrar (allavega svona í bili:P ).

Það hafa rosalega margir verið að hringja út af FV jólaballinu á Nasa og já það er uppselt í forsölu og aftur já það verður hægt að kaupa miða við innganginn:) Mæli samt með að þeim sem er það hjartans mál að komast inn mæti tímanlega að kaupa miða!

                                                                                                            Jólakveðjur… Anna




Eliminate stress!

16 12 2007

 

In trance….
You don’t need to make any effort.

 

Enjoy all the changes.

 

The thougths come by themself.
Let go.
Notice your breathing.
Notice your puls.
Breath out and inn.
out and inn.

 

out and inn.
My voice will take you inn to trance.

 

My voice will be with you.

 

Observe your awareness.

 

Now count backwards from 300…. ….. ….

 

299..298..297…

 

Andvökunætur elta mig. Ég er mjög andvík þeim en þær vilja mig.

 

Náði mér í semí dáleiðslu plötu sem vann mig yfir… mjög, mjög spes!!!!!!!!





Aðgerðagreining hvað…

12 12 2007

Næst á dagskrá er aðgerðagreiningar próf… Ferskleikinn uppmálaður:) Í tilefni af því setti ég hér stutta sögu sem talar fyrir sig sjálfa:P

hihihihihihi





Takk Guð fyrir að ég fæddist á Íslandi…

9 12 2007

Ég ætlaði mér að prófa það snilldar ráð að byrja á því að hlusta á hljóðbók í prófatíðinni. Ástæðan var einföld, hún átti að leiða mig í heim draumanna á þessum tíma stress og pirrings. Ég hélt að það væri auðveldara að sofna með hljóðbók heldur en venjulega þar sem ljósin geta verið slökt og líkaminn fullkomnlega afslappaður.

Niðurstaðan sem ég komst að eftir að hafa eytt heilli nótt með ekkann í hálsinum glaðvakandi enn þegar sólin hefði átt að fara að láta sjá í sig ef ég byggi á landi við miðbaug:P, var sú að þetta er virkar engan vegin nema bókin sé leiðinleg.

Bókin sem varð fyrir valinu var “Flugdrekahlauparinn” eða “Kite runner”.

Ég var ólýsanlega hrifinn af bókinni. Hún er sannarlega bók sem allir ættu að kynna sér. Hún veitir okkur ísleningum tilfinningu fulla af þakklæti yfir því að hafa fæðst á þessu dásamlega landi sem Ísland er.

Bókin gerist í Afganistan og er hreint skelfileg að hlusta á lýsingar frá því að landið var búanlegt og fallegt yfir í það stríðs-skemmda land sem raun ber vitni.


kv. Annie





Facebook

2 12 2007

Vúpsí..

Ég hef vanrækt wordpress verulega undanfarið.

Raunar hef ég vanrækt allt nema fundi, facebook og skólatengt efni undanfarið :S

Það hefur hellingur gerst síðan síðast.  Ég fór í unaðslegan jóla-sumarbústað með familíunni, þar sem mér tókst að hlaða batteríin eftir mestu ógeðis verkafnavikur lífs míns. Kom síðan fersk inn í prófaundirbúning heim:)

Hef verið að þræða öll merkilegustu fyrirtæki íslands með Brynju og Völu og fá þau til að taka þátt í Framadögum. Ótrúlega skemmtilegt, mæli með svona verkefni.

Annars hafa undanfarnir dagar í lífi Önnu verið ofurhlaðnir og ekkert voða spennandi frá þeim að segja.

Hins vegr hvet ég alla sem ekki eru komnir með facebook að fá sér slíka gersemi. Gott að stytta sér stunfir þar í prófaundirbúningi.

Þeir sem eru enn alveg út á þekju og ekki búnir að skipuleggja 21. des þá er skyldumæting á aðal-jólaballið í ár: PRÓFLOKAPARTÝ Á NASA .Nánari upplýsingar á  HÉR!

kv. Anna





Bíddu hvort þýðir 21 aftur 9 um kvöld eða morgun?

17 11 2007

Shit, ohhh… ég sef alltaf yfir mig, dem! Vá hvað ég er búin að sofa lengi!!!! Alveg hreint næstum 15 klukkutíma ! Tíminn með sína vísa er að hlaupa í átt að 10. Best að klæða sig, greiða, tannbursta og drífa. Hringja svo í stelpurnar og athuga hvort þær séu nokkuð löngu komnar.

15 mín seinna. – Búin að tannbursta, klæða greiða, drífa, að fara að hringja þegar hugsunin loksins hvarlast að mér að 21:50 þýði í raun að það sé ENN KVÖLD, meira að segja laugardagskvöld :S!

Men, hversu ruglaður getur maður orðið á nokkrum sólarhringum. Föstudagsnóttinni var sum sé eytt á nýja heimilinu mínu. Verkefnið sem hélt verkfræðiskvísunum vakandi þessu sinni var verkefni í hagverkfræði sem átti að flytja í KB banka á laugardagsmorgninum (gaman hvað það skerast alltaf á hjá mér tímar á laugardögum :/ urrr).

Kl. 05:35 á laugardagsmorgninum lagðist ég í hyper á sykurvímu upp í rúmið mitt eftir að hafa loksins komist á sameiginlega niðurstöðu að verkefnið væri tilbúið eins og það væri. Kl 06:03 var sykurvíman undirmaður þreytunnar sem heltók mig og kroppurinn sofnaði.

Kl 08:00 -Skundað af stað í fína pússinu og fyrirlestur um arðsemismat og framleiðslugreiningu Nesbús var fluttur fyrir fríðan hóp verðandi verkfræðinga. Vala og Hjördís sáu um flutninginn og stóðu þæri sig vonum framar! Held ég gleymi seint þeirri stund þegar Vala rétti Eiríki kennara Egg að gjöf og nokkrum sekúndum síðar þegar hún hellti fram þessari líkingu: “…hugsum okkur að Eiríkur sé Egg. Hann væri þá brotinn í þessari vél og myndi svo lulla niður í þessar leiðslur…”

Kl: 19:00 – uppgefin, farin að sofa með það að markmiði að vakna í síðastalagi kl 09:00 á sunnudeginum. Nú er sögunnu haldið í byrjun þessara færslu….;)

Svefnleysi er augljóslega beintengt við geðveiki!!!





Gunnazorus

15 11 2007

Hverjar eru líkurnar á því að maður sem fær 170 kg á fullri ferð ofan á hálsinn á sér, með hausinn kraminn á milli lóðs og bekkjas, beri engan varanlega skaða af. Það sem meira er, brýtur ekki eitt bein í líkama sér. Ég er mikil líkindafræði kona og segi að líkurnar séu í hæsta falli 0.1%. Því verð ég að segja að hann Gunni minn er klárlega í minnihlutahóp því kappinn lenti einmitt í þessu en er nú sprækur sem lækur. Þurfti reyndar að sauma augað á honum þar sem það rifnaði upp úr augntiftinni og bólginn er kallinn eins og sjá má..

CIMG2718

Alveg hreint makalaust!!

kv. Anna@VR

skoli





Dómarastörf, nýr bíll og verkefni, verkefni, verkefni….

10 11 2007

Viðburðarík vika… dvalarsaður VR2… get ekki beðið eftir næstu vikulokum þegar öllu stóru verkefnaskilin sem hafa verið að að hoppa á berskjölduðu taugunum á mér undanfarna daga eru komin í höfn. Fann samt tíma eitt kvöldið til að skreppa á bílasölu. Ákvörðiun var tekið að eyða ekki meiri tíma nema einu kvöldi í slíkan verlsunarleiðangur og stóðst sú áætlun:D Bíllinn er undur undur fagur og ber nafnið Goldie. Hann er af gerðinu Daewoo Nubria

CIMG2678

 Eftir um að bil eins og hálfrar klukkutíma svefn steig ég upp í Goldie kl:07:50 í morgun.Kaffiþyrst og kvefuð. Vildi mun frekar hafa augun lokuð lengur upp í rúmi! Áfangastaðurinn var Askja þar sem First LEGO league keppni grunnskóla fór fram. Ég sem verkfræðinemi var dómari og átti að gefa börnunum einkunn fyrir tækin sín. Sjaldan hef ég skemmt mér jafnvel. Keppnin hreif mig gjörsamlega með sér. Ég tók nokkrar myndir… 

First Lego keppnin




Pics

6 11 2007

Ég skellti inn nokkrum myndum frásíðustu helgi – Vúhú.

Fáránleikar verkfræðinnar 07

Í fréttum er allt á fullu. Næsta helgi er plönuð út í ystu æsar, mun ég bæði verða dómari í æsispennandi Legó-keppni sem varir frá kl: 8-17 á laugardeginum. Á sunnudeginum verður sennilega skundað til Selfoss á Ráðstefnu og þess á milli verður aðgerðargreiningar-partý í VR2. Öllum velkomið að joina það sem eru vel að sér í því fagi;)

Er nú formlega búin að slá met mitt sem verkefnastjóri. Ef einhver lumar á dásamlegu masters/doktorsverkefni þá eru eyru mín opin fyrir kynningu:D





Fáránleikar, átakshelgi upp í VR og afmæli hjá Heru

4 11 2007

Fáránleikar verkfræðinnar voru um helgina og voru búningarnir ekki af lakari endanum;)

Sumir fóru jafnvel svo langt að raka á sig munka-skalla, hihihi… Ég tók fullt af myndum en gleymdi myndavélinni út á Granda í gær svo ég set þær bara inn um leið og ég fæ hana.

Það verður að segjst að þessi munkur (…púki) er með þeim svalari.. hihih

VIR áttu sigurliðið að þessu sinni og báru liðsmenn þess nafnið “The Lumberjacks“. Fékk það lið bæði búningaverðlaunin og verðlaunin fyrir keppnina sjálfa (ég tek það skýrt fram að mitt búninga-atkvæði féll til “Lagrane-systra” og er ég enn sár að þau hafi ekki unnir titilinn flottustu búningarnir!!).

Öllum laugardeginum var svo enn og aftur eytt upp í VR2, að þessu sinni var það átakshelgi í gæðastjórnun sem átti hug minn allan, urrr. Um kvöldið var ekkert sem ég hefði frekar viljað gera en að slaka á og njóta samveru stellanna og varð það raunin í afmælisveislu hjá Heru ;) Takk fyrir frábæra veislu!!!

Ég kenni yfirbókun um bloggleysi undanfarið, og má sjá sannleikan í þeirri yfirlýsingu að ég hef enn ekki haft tíma í að láta draga bílinn minn frá bílastæðinu fyrir framan Háskólan. Greyið hefur þurft að dúsa þarna frá því í síðustu viku (eins og reyndar fleiri:P ) og þar sem ég er bundin þessum bíl miklum tilfinningatengslum veit ég að hann er ósáttur við augngotur þeirra sem hneykslast á þessari löngu dvöl hans á sama stað!